Allar fréttir

Miðvikudagur, 21. september 2022

Lilja Einarsdóttir hefur verið ráðin hjúkrunarforstjóri Lundar. Stjórn Lundar ásamt faglegum ráðgjafa ráðningarskrifstofu voru samróma um að Lilja væri hæfust sjö umsækjenda til að gegna starfinu. Lilja er hjúkrunarfræðingur að mennt og hefur einnig lokið viðbótardiplómu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands auk þess að hafa sótt ýmis námskeið í tengslum við hjúkrun og rekstur.

 

Föstudagur, 16. september 2022

4. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 21. september 2022.  Fundarstaður er skrifstofa Ásahrepps að Laugalandi og hefst fundurinn klukkan 8:30.

Hægt er að sjá dagskrá fundarins með því að smella á krækjuna:  Dagskrá fundar

Miðvikudagur, 14. september 2022

Ef þið eruð íbúar og/eða fasteignaeigendur í Ásahrepp, Rangárþingi ytra eða Rangárþingi eystra þá biðjum við ykkur um að taka þessa könnun með því að smella á linkinn hér fyrir neða

Mánudagur, 12. september 2022

GRENNDARKYNNINGARGÖGN EINGÖNGU BIRT Í PÓSTHÓLFI Á ISLAND.IS

Frá og með 1. september mun embættið hætta að senda út hefðbundnar bréfasendingar og birta afgreiðslubréf og grenndarkynningargögn eingöngu í pósthólfum einstaklinga og lögaðila á island.is. Afgreiðslubréfin eru send á pósthólf umsækjenda málanna en grenndarkynningargögn á þá aðila sem taldir eru eiga mögulegra hagsmuna að gæta við óverulegar skipulagsbreytingar eða byggingarframkvæmdir þar sem skipulag liggur ekki fyrir.

Mánudagur, 12. september 2022

Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu heldur utan um afgreiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings sem sveitarfélögum er skylt að greiða samkvæmt lögum um húsnæðisbætur nr. 76/2016. Sérstakur húsnæðisstuðningur kemur þá í stað sérstakra húsaleigubóta. Nánari upplýsingar um skilyrði fyrir samþykki umsóknar og fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings má sjá í reglum um sérstakan húsnæðisstuðning inn á heimasíðu Félagsþjónustunnar, www.felagsmal.is.

Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15 – 17 ára námsmanna

Mánudagur, 5. september 2022

Umsóknarfrestur um starf hjúkrunarforstjóra Lundar á Hellu rann út þann 22. ágúst síðastliðinn.  Alls bárust átta umsóknir en ein var dregin til baka. Umsækjendur eru:

Anna Árdís Helgadóttir, deildarstjóri
Fanney Gunnarsdóttir, deildarstjóri
Lilja Einarsdóttir, hjúkrunarforstjóri
Rósa Jóhannesdóttir, hjúkrunarforstjóri
Sólrún Þórunn Bjarnadóttir, húkrunarforstjóri
Unnur Þormóðsdótttir, hjúkrunarforstjóri
Þórhildur Guðbjörg Hjaltadóttir, hjúkrunarfræðingur

 

Mánudagur, 15. ágúst 2022

Boðað er til aðalfundar Fjallskiladeildar Holtamannaafréttar að Lauglandi í hreppssal Ásahrepps, fimmtudaginn 18. ágúst 2022 klukkan 20:00.

Fulltrúar þeirra lögbýla sem upprekstrarrétt hafa á Holtamannaafrétti samkvæmt fjallskilaskrá hafa athkvæðisrétt á fundinum.

Kosnir verða 3 menn af 5 í stjórn deildarinnar og jafnmargir til vara, þ.e. 2 frá Ásarheppi og 1 frá fyrrum Djúpárhreppi.

Önnur mál samkvæmt samþykktum deildarinnar.

 

Ísleifur Jónasson
oddviti Ásahrepps

Föstudagur, 12. ágúst 2022

3. fundur hreppsnefndar Ásahrepps kjörtímabilið 2022-2026 verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps miðvikudaginn 17. ágúst 2022.  Fundur hefst klukkan 8:30.

Með því að smella á krækjnua hér fyrir neðan er hægt að sjá dagskrá fundarins:

Dagskrá

Miðvikudagur, 10. ágúst 2022

Laust er til umsóknar starf ritara hjá Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs.

Um framtíðarstarf er að ræða í 100% starfshlutfalli.

Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Móttaka gagna og skjalaumsjón
• Ráðgjöf og upplýsingagjöf við umsækjendur í síma og tölvupósti
• Samskipti og bréfaskrif við opinberar stofnanir
• Reikningagerð
• Önnur tilfallandi störf í samráði við yfirmann

Föstudagur, 15. júlí 2022

Til að sjá auglýsinguna þarf að smella á krækjunar: https://www.utu.is/skipulagsauglysingar/ eða beint á auglýsinguna sjálfa: https://www.utu.is/skipulagsauglysing-sem-birtist-14-juli-2022/

Hvert mál í auglýsingunni á vef UTU er með tengingu á skipulagsgögn (þ.e. lýsingu, uppdrátt, greinargerð o.s.frv.).

 

Pages