Allar fréttir

Laugardagur, 24. desember 2022

Mánudagur, 19. desember 2022

Skrifstofa Ásahrepps verður lokuð í dag vegna veðurs.

Hægt er að hafa samband við sveitarstjóra í síma 897-0890.

sunnudagur, 18. desember 2022

Vegna slæmrar veðurspár hefur verið tekin ákvörðun um að fresta upplýsingafundi um félagsþjónustu og félagsstarf eldri borgara sem halda átti mánudaginn 19. desember n.k. að Laugalandi.

Fundinum er frestað um óákveðinn tíma.  Nýtt fundarboð verður sent út þegar ákveðinn hefur verið nýr fundartími.

Föstudagur, 16. desember 2022

8. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi, miðvikudaginn 21. desember 2022.  Fundur hefst klukkan 8:30.

Dagskrá fundar

Mánudagur, 12. desember 2022

Hreppsnefnd Ásahrepps býður öllum íbúum Ásahrepps til upplýsingafundar að Laugalandi í Holtum, matsal. 
Fundurinn verður haldinn mánudaginn 19. desember 2022 og hefst klukkan 16:00.

Á fundinum munu halda fræðsluerindi:

Miðvikudagur, 7. desember 2022

Guðjón Ragnar Jónasson var í byrjun nóvember ráðinn ritstjóri Goðasteins, en leitin að nýjum ritstjóra tók lengri tíma en áformað var. Nýr Goðasteinn kemur því út í byrjun febrúar og þeir sem hafa áhuga á að gerast áskrifendur að Goðasteini hafi samband í gegnum netfangið gudjon@bifrost.is . Þeir sem gerast áskrifendur nú geta fengið eldri blöð á vildarkjörum. Gaman er frá því að segja að Goðasteinn nýtur mikillar velvildar í héraði og mýmargir hafa léð efnisöfluninni í blaðið lið.

Miðvikudagur, 7. desember 2022

Aukafundur verður haldinn hjá hreppsnefnd Ásahrepps, föstudaginn 9. desember 2022, klukkan 8:30.  Fundarstaður er skrifstofa Ásahrepps að Laugalandi.

Dagskrá fundar

Mánudagur, 5. desember 2022

Við leitum að Rangæingum sem vilja taka þátt í að móta nýja hringrás fyrir lífrænan heimilisúrgang í sýslunni!

Mánudagur, 28. nóvember 2022

Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélags Rangæinga verður laugardaginn 17. desember n.k frá kl. 12-15  í Bolholtsskógi á Rangárvöllum.

Þá býðst fólki að koma í skóginn og höggva sitt eigið tré.  Eingöngu er um að ræða stafafuru.  Við verðum að auki með á plani tilhöggið greni og furu.  Óski fólk efir að koma og velja sér sjálft greni er hægt að hafa samband og finnum út úr því.  Sem fyrr er hægt að panta tré og er afhending eftir samkomulagi.

Boðið verður uppá hressingu í skóginum.   Með kaupum á íslenskum „jólatrjám“ stuðlum við að minni mengum og styrkjum gott málefni.

Mánudagur, 28. nóvember 2022

Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu auglýsir laust til umsóknar starf þroskaþjálfa og/eða félagsráðgjafa í málaflokk fatlaðs fólks. Um er að ræða 50 – 100 % starfshlutfall. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri Félags- og Skólaþjónustu Rangárvalla og Vestur Skaftafellssýslu sem annast félags- og Skólaþjónustu sveitarfélaganna í Ásahreppi, Rangárþingi ytra, Rangárþingi eystra, Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi. Skrifstofa félagsþjónustunnar er staðsett á Hellu. Í sveitarfélögunum búa u.þ.b.  5.300 manns.

Pages