Allar fréttir

Miðvikudagur, 29. júní 2022

Skrifstofa Ásahrepps verður lokuð vegna sumaarleyfa frá 4. júlí 2021 til og með 5. ágúst 2022, skv. ákvörðun hreppsnefndar á 2. fundi sínum.

Erindi til skrifstofu Ásahrepps skal senda með tölvupósti eða með almennri póstsendingu. Einnig er hægt að hafa samband símleiðis, sjá símanúmer hér fyrir neðan.

Mánudagur, 27. júní 2022

Að höfðu samráði við Landgræðsluna verður heimilt að hefja upprekstur á Holtamannaafrétt fimmtudaginn 30. júní 2022.

Fjallskilanefnd

Föstudagur, 24. júní 2022

2. fundur hreppsnefndar Ásahrepps, kjörtímabilið 2022-2026, verður haldinn miðvikudaginn 29. júní 2022 á skrifstofu sveitarfélagsins að Laugalandi.  Fundur hefst klukkan 8:30.

Til að sjá dagskrá fundarins þá þarf að smella á eftirfarandi krækju:  Dagskrá fundar

Þriðjudagur, 21. júní 2022

Röskun verður á sorphirðu þessa vikuna vegna bilunar í bíl. Þeir sem ekki hafa fengið plastlosun fá hana í dag. Á morgun hefst losun á almennu sorpi í Fljótshlíð og V-Landeyjum. Losun á almennu sorpi hliðrast um einn dag hjá öllum þessa vikuna.

Fimmtudagur, 16. júní 2022

Til þess að sjá auglýsinguna þarf að smella á krækjuna: https://www.utu.is/skipulagsauglysingar/ eða beint á auglýsinguna sjálfa:

sunnudagur, 29. maí 2022

1. fundur nýkjörinnar hreppsnefndar Ásahepps, kjörtímabilið 2022-2026, verður haldinn föstudaginn 3. júní 2022.  Fundurinn verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi og hefst klukkan 9:00.

Til að sjá dagskrá fundarins þá þarf að smella á krækjuna:  Dagskrá 1. fundar

Miðvikudagur, 18. maí 2022

Kjörfundur var haldinn að Ásgarði þann 14. maí 2022. Kjörfundur hófst klukkan 10:00 og var lokið klukkan 18:00.  Talning atkvæða hófst klukkan 19:00 og lauk klukkan 21:00.  Á kjörskrá vouru 179 einstaklingar.  Alls greiddu 130 atkvæði og var kjörsókn því 72,6%.

Niðurstöður kosninga til sveitarstjórnar í Ásahreppi voru eftirfarandi:

Ísleifur Jónasson, Kálfholti, (76)
Helga B. Helgadóttir, Syðri-Hömrum, (62)
Nanna Jónsdóttir, Miðhól, (61)
Þráinn Ingólfsson, Tyrfingsstöðum (56)
Kristín Hreinsdóttir, Seli (40)

Föstudagur, 13. maí 2022

55. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn á skirfstofu sveitarfélagsins að Laugalandi, miðvikudaginn 18. maí 2022.  Fundur hefst klukkan 8:30.

Dagskrá 55. fundar hreppsnefndar Ásahrepps

Þriðjudagur, 10. maí 2022

Frá miðjum maí og fram í júní mun Sorpstöðin bjóða uppá að hirða járn og timbur heima á bæjum
skv. pöntunum líkt og gert var í fyrra.

Pages