Opið er fyrir umsóknir um styrki frá NATA, samstarfssamningi Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála. Veittir eru styrkir til markaðs- og þróunarverkefna annars vegar og ferðastyrkir hins vegar.
Áhugasömum aðilum hér með boðið að taka þátt í fyrsta áfanga í mótun umhverfis- og auðlindastefnu fyrir Suðurland. Haldnir verða sjö opnir samráðsfundir á Suðurlandi. Viðfangsefni fundanna er að greina helstu tækifæri og álitamál á sviði umhverfis- og auðlindamála, auk þess verða kynnt áhugaverð fordæmi í þessum efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðherra, skipaði síðastliðið vor þverpólitíska nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar allra þingflokka á Alþingi auk tveggja fulltrúa sveitarfélaga. Þá sitja fulltrúar frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu í nefndinni.