Allar fréttir

Föstudagur, 8. maí 2026

 

Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga í Ásahreppi 16. maí 2026 verður haldinn í Miðgarði á Laugalandi. Gengið er inn í húsið að ofanverðu.

Kjörfundur hefst klukkan 10:00 og stendur til 18:00.

Vakin er athygli kjósenda á skyldu til að framvísa persónuskilríkjum óski kjörstjórn eftir því.

Talning atkvæða fer fram á sama stað og er áætlað að talning hefjist klukkan 19:00.

 

Fyrir hönd kjörstjórnar

Kristín Ósk Ómarsdóttir, formaður

 

Miðvikudagur, 29. apríl 2026

Í byrjun maí áætlar Landsvirkjun að hefja umfangsmikla flutninga á vindmyllum frá Þorlákshöfn til Vaðölduvers í Rangárþingi ytra sem standa munu yfir í 7-9 vikur.

Flutningarnir verða að næturlagi en landeigendur og íbúar á svæðinu munu óhjákvæmilega verða varir við þá. Við viljum draga eins og kostur er úr raski á daglegu lífi íbúa, landeigenda og annarra sem búa eða starfa við flutningsleiðina með góðri upplýsingagjöf.

Mánudagur, 27. apríl 2026

Landsvirkjun hyggst stækka Sigöldustöð með því að bæta við fjórðu aflvélinni og auka með því afl stöðvarinnar í allt að 215 MW. Undirbúnings framkvæmdir eru hafnar og eru verklok áformuð árið 2029. Fyrirhuguð stækkun á Sigöldustöð fór í gegnum umhverfismat sem lauk með áliti Skipulagsstofnunar þann 18. desember 2023. Aflstöðin verður í eðlilegum rekstri á framkvæmdatíma nema þegar hana þarf að stöðva vegna framkvæmda í inntaki og/eða í frárennslisskurði. Gert er ráð fyrir að það verði gert tvisvar á framkvæmdatímanum eða sumarið 2026 og sumarið 2028.

Mánudagur, 13. apríl 2026

 

Þriðjudagur, 7. apríl 2026

Miðvikudagur, 1. apríl 2026

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Ásahreppi, sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026, rennur út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026.

Þann sama dag tekur kjörstjórn sveitarfélagsins á móti framboðslistum á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi, á milli kl. 11:00 og 12:00.

Hverjum framboðslista skal fylgja:

Miðvikudagur, 1. apríl 2026

Mánudagur, 30. March 2026

Aðalfundur Hestamannafélagsins Geysis fer fram í Rangárhöllinni við Hellu mánudaginn 30. mars og hefst kl 20:30.

Dagskrá:

Pages